Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. febrúar 2016 18:00
Elvar Geir Magnússon
Robinho til Atletico Mineiro (Staðfest)
Robinho er kominn heim til Brasilíu.
Robinho er kominn heim til Brasilíu.
Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknarmaðuinn Robinho, fyrrum leikmaður Real Madrid og Manchester City, hefur skrifað undir samning við Atlético Mineiro í heimalandinu.

Þessi 32 ára leikmaður var síðast hjá Guangzhou Evergrande í Kína.

Robinho varð tvívegis spænskur meistari með Real Madrid, einu sinni ítalskur meistari með AC Milan og fagnaði kínverska meistaratitlinum í fyrra.

Atletico er í Belo Horizonte en forseti félagsins, Daniel Nepomuceno, staðfesti í dag að búið væri að ganga frá samningi við Robinho.
Athugasemdir
banner