Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 12. febrúar 2016 15:20
Magnús Már Einarsson
KR-ingar skoða annan Morten Beck
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Danski leikmaðurinn Morten Beck verður til reynslu hjá KR í æfingaferð liðsins í Florida í þessum mánuði.

KR er á leið til Florida á þriðjudaginn en þeir taka þátt í æfingamóti þar ásamt New York FC, FC Cincinnati frá Bandaríkjunum og HB Koge.

Morten er 21 árs gamall en hann getur spilað í bakverði, á kanti og á miðjunni.

Hann var á mála hjá SönderjyskE en síðast lék hann með Horsens á láni í dönsku B-deildinni þar sem hann spilaði meðal annars með Kjartani Henry Finnbogasyni.

Morten er nafni danska sóknarmannsins Morten Beck Andersen sem gekk í raðir KR á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner