Arsenal fær Leicester í heimsókn í fyrsta leik dagsins í enska boltanum.
Leicester er með fimm stiga forystu á toppi deildarinnar en Arsenal er í þriðja sæti og þarf á sigri að halda til að halda í við forystusauðina í Leicester.
Liðsmenn Claudio Ranieri hafa aðeins tapað tveimur leikjum á tímabilinu og annað tapið kom í fyrri leiknum gegn Arsenal en skytturnar unnu ótrúlegan 5-2 sigur á King Power leikvangnum í lok september.
Sílemaðurinn Alexis Sanchez gerði þrennu í þeim leik og hann er í byrjunarliði Arsenal í dag.
Byrjunarlið Arsenal:Cech, Bellerin, Mertesacker, Koscielny, Monreal, Coquelin, Ramsey, Oxlade-Chamberlain, Özil, Sanchez, Giroud.
Varamannabekkur: Ospina, Chambers, Flamini, Elneny, Campbell, Walcott, Welbeck.
Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Simpson, Morgan (c), Huth, Fuchs, Mahrez, Kanté, Drinkwater, Albrighton, Okazaki, Vardy.
Varamannabekkur:Schwarzer, King, Gray, Ulloa, Dyer, Wasilewski, Chilwell
Athugasemdir