Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   sun 14. september 2014 22:15
Alexander Freyr Tamimi
Pablo Punyed: Sagði Veigari að hann yrði að skora
Pablo Punyed.
Pablo Punyed.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pablo Punyed skoraði annað marka Stjörnunnar í 2-0 sigri liðsins gegn Keflavík í Pepsi-deildinni í kvöld.

Stjarnan er því enn í bullandi titilbaráttu, tveimur stigum frá toppliði FH þegar fjórir leikir eru eftir.

,,Við þurftum þessi þrjú stig. Við vissum það fyrir leik að FH og KR hefðu bæði unnið sína leiki," sagði Pablo eftir leikinn, þar sem aðstæður voru skelfilegar.

,,Það var mjög erfitt, en erfitt fyrir bæði lið. Við vissum að við þyrftum að vinna hvort eð er."

Pablo neitar því að sigur FH gegn Þór í dag hafi aukið pressuna á Stjörnunni.

,,Við vissum að þeir væru ekki að fara að tapa þessum leik. Við þurfum hvort eð er að vinna alla leiki ef við ætlum að vinna titilinn, þannig að þetta var engin pressa."

Pablo skoraði laglegt aukaspyrnumark og kom Stjörnunni í 1-0, en Veigar Páll Gunnarsson skoraði svo úr aukaspyrnu undir lok leiks.

,,Við höfum æft þetta á æfingum, ég og Veigar skoruðum báðir úr aukaspyrnum. Það var frábært fyrir okkur. Vindurinn hentaði Veigari betur í seinni spyrnunni, og hann skoraði. Ég sagði honum að það væri eins gott að hann myndi skora."
Athugasemdir
banner
banner