Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. mars 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
HM hópurinn verður tilkynntur 11. maí
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, staðfesti á fréttamannafundi í dag að 23 manna hópurinn fyrir HM í sumar verði tilkynntur föstudaginn 11. maí næstkomandi.

12 leikmenn verða að auki á biðlista en þeir gætu komið inn í hópinn ef forföll verða.

KSÍ þarf að skila endanlegum leikmannalista til FIFA þann 4. júní.

Vináttuleikir Íslands fram að HM
23. mars Mexíkó - Ísland (San Francisco)
27. mars Perú - Ísland (New York)
2. júní Ísland - Noregur (Laugardalsvöllur)
7. júní Ísland - Gana (Laugardalsvöllur)

Leikir Íslands á HM
16. júní Argentína - Ísland (Moskva)
22. júní Nígería - Ísland (Volgograd)
26. júní Ísland - Króatía (Rostov)

Athugasemdir
banner
banner
banner