Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. september 2014 11:04
Elvar Geir Magnússon
Fótbolti.net gefur á kvennalandsleikinn við Serbíu
Þóra Helgadóttir.
Þóra Helgadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fótbolti.net og KSÍ bjóða lesendum á kvennalandsleik Íslands og Serbíu sem fram fer klukkan 17:00 á miðvikudag á Laugardalsvelli.

Eina sem þú þarft að gera er að senda tölvupóst [email protected] og við sendum þér upplýsingar um það hvernig þú átt að nálgast miðana.

Þó svo að Ísland eigi ekki möguleika á því að komast í úrslitakeppnina í Kanada þá skiptir miklu máli að ljúka keppninni á jákvæðum nótum og setja þar með tóninn fyrir undankeppni EM.

Markvörðurinn, Þóra Helgadóttir, hefur gefið út að þetta verði hennar síðasti landsleikur, sá 108. í röðinni, og er hér gott tækifæri fyrir áhorfendur að kveðja hana eftir frábæran feril.
Athugasemdir
banner
banner
banner