Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   sun 16. nóvember 2014 22:47
Magnús Már Einarsson
Kolbeinn: Dómarinn var skelfilegur
Icelandair
Kolbeinn Sigþórsson var nálægt því að skora.
Kolbeinn Sigþórsson var nálægt því að skora.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Sigþórsson, framherji íslenska landsliðsins, var að vonum svekktur eftir 2-1 tapið gegn Tékklandi í undankeppni EM 2016 í Plzen í kvöld.

Lestu um leikinn: Tékkland 2 -  1 Ísland

,,Það vantaði einbeitningu. Við vorum of varkárir líka í okkar spili og kláruðum ekki okkar færi. Við náum að koma okkur í 1-0 og erum í fínni stöðu en vörðumst kannski of mikið. Það komu opnari færi fyrir okkur þegar við loksins settum pressu, en við verðum að viðurkenna að við vorum ekki betra liðið í dag. En miðað við færi hefðum við getað skorað þrjú," sagði Kolbeinn við Fótbolta.net.

Kolbeinn fékk eitt færi skömmu fyrir leikhlé í stöðunni 1-0 fyrir Íslandi en varnarmaður Tékklands komst í veg fyrir hann.

,,Þetta var erfitt færi, þetta lúkkaði örugglega "easy" en varnarmaðurinn fannst mér vera utan í mér og ég fékk ekki nægan tíma til að geta klárað færið nógu vel. Þetta var pínu klafs, þeir voru heppnir þarna, hann fór í varnarmann og svo í markmann held ég."

,,Mér fannst dómarinn skelfilegur í þessum leik. Hann dæmdi allt of mikið á okkur, fannst mér. En ég ætla ekki að fara að kenna dómaranum um tapið þó hann hafi verið lélegur."




Athugasemdir
banner
banner