Carl Ikeme, fyrrum liðsfélagi Jóns Daða Böðvarssonar hjá Wolves, berst nú við krabbamein og er því ekki með löndum sínum í nígeríska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Rússlandi.
Ikeme og Jón Daði spiluðu saman í þann stutta tíma sem Jón Daði var hjá Wolves en Ikeme hefur verið á mála hjá Wolves frá árinu 2003.
Næsti leikur Íslands er einmitt gegn Nígeríu en hann fer fram næsta föstudag.
Nú hefur Jón Daði birt mynd af sér og liðsfélögum sínum í íslenska landsliðinu þar sem hann heldur á treyju íslenska landsliðsins merkta Ikeme og senda þeir honum góðar kveðjur.
All of us in @footballiceland are with you @Carl_Ikeme 👊🏻❤️ pic.twitter.com/LMy4fumDj5
— Jon Dadi Bodvarsson (@jondadi) June 17, 2018
Athugasemdir