Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands, segir mikilvægast fyrir íslenska landsliðið að hlaða upp orku fyrir leikinn gegn Nígeríu á föstudaginn.
Leikmenn landsliðsins fá frí á æfingu í dag til að hlaða batteríin eftir leikinn gegn Argentínu í fyrradag.
Á miðvikudaginn er ferðinni síðan heitið til Volgograd þar sem liðið mætir Nígeríu á föstudag. Heimir reiknar með erfiðum leik þar.

„Þeir eru mjög kraftmiklir, sterkir og með mikla hlaupagetu," sagði Heimir við FIFA í dag.
„Þá þarf batteríið að vera fullt. Það er forgangur fyrir þann leik að fylla batteríið."
Góðan daginn frá Kabardinka🇷🇺! Enginn æfing hjá #isl í dag. Heimir um #NGA liðið: "Þeir eru mjög kraftmiklir, sterkir og með mikla hlaupagetu. Þá þarf batteríið að vera fullt. Það er forgangur fyrir þann leik að fylla batteríið."#WorldCup #FyrirIsland pic.twitter.com/nDiL4lzqDT
— Pétur Hreinsson, FIFA (@FIFAWorldCupISL) June 18, 2018
Athugasemdir