Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 19. apríl 2017 10:51
Elvar Geir Magnússon
Rúnar Már valinn í úrvalslið vikunnar í Sviss
Mynd: Getty Images
Blick Sport velur Rúnar Má Sigurjónsson í úrvalslið liðinnar umferðar í svissnesku deildinni.

Í umsögn blaðsins segir að Rúnar hafi verið sem klettur á miðjunni en hann lagði upp sigurmark Grassopper gegn Young Boys á mánudaginn.

Mikilvægur sigur hjá Grasshopper sem hoppaði upp úr næst neðsta sæti deildarinnar í það sjöunda.

Rúnar er 26 ára og gekk í raðir Grasshopper í fyrra. Hann á 12 landsleiki að baki fyrir Ísland en var ekki valinn í síðasta landsliðshóp sem landaði sigri gegn Kosóvó úti.

Átta umferðir eru eftir af svissnesku deildinni en Basel er með yfirburðarforystu á toppi deildarinnar.

Rúnar Már Sigurjónsson in the team of the week by Blick Sport. 👌🇮🇸 #TeamTotalFootball

A post shared by Total Football / M.A.Magnusson (@totalflmagnus) on


Athugasemdir
banner
banner