Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 20. febrúar 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Bielsa tekur við Lille í sumar (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Marcelo Bielsa hefur verið ráðinn þjálfari franska félagsins Lille en hann mun taka við liðinu í sumar.

Franck Passi stýrir Lille út tímabilið en Bielsa tekur síðan við af honum í sumar.

Hinn 61 árs gamli Bielsa þjálfaði landslið Argentínu frá 1998 til 2004.

Tímabilið 2014/2015 stýrði Bielsa liði Marseille en síðasta sumar var hann ráðinn þjálfari Lazio á Ítalíu. Bielsa sagði hins vegar upp störfum hjá Lazio eftir einungis tvo daga.

Á ferlinum hefur Bielsa einnig þjálfað Espanyol, Athletic Bilbao og landslið Síle til að mynda.
Athugasemdir
banner
banner