Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. mars 2017 09:30
Magnús Már Einarsson
Pulis: Wenger segist ætla að vera áfram
Hvað gerir Wenger?
Hvað gerir Wenger?
Mynd: Getty Images
Tony Pulis, stjóri WBA, segir að Arsene Wenger verði áfram stjóri Arsenal á næsta tímabili.

Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Wenger að undanförnu en samningur hans við Arsenal rennur út í sumar.

„Ég verð hissa ef hann fer," sagði Pulis í viðtali eftir 3-1 sigur WBA á Arsenal um helgina.

Aðspurður út í það af hverju hann teldi að Wenger yrði áfram þá svaraði Pulis: „Vegna þess að hann sagði mér það."

Talsmaður Arsenal sagði í dag að félagið muni ákveða framtíð Wenger í sameiningu við hann sjálfan og að sú ákvörðun verði tekin á réttan hátt á réttum tímapunkti.
Athugasemdir
banner
banner