Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mið 20. maí 2015 22:51
Arnar Ingi Ingason
Kristján Guðmunds: Þó kaupið sé lágt þá verður maður að vinna
Kristján Guðmundsson
Kristján Guðmundsson
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
„Það er fyrst og fremst að við erum ekki að hlaupa rétt inn og ekki að sparka boltanum í markið þegar við komum boltanum inn í teiginn.“ sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga aðspurður hvað hafi klikkað í tapi liðsins gegn Fjölni í Pepsi-deild karla.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  0 Keflavík

„Þetta virtist vera 0-0 leikur. Ég tel að það hefðu verið eðlileg úrslit en þetta er bara óheppni að fá boltann í hendina inni í teig og svona gerist.“

Það er svekkjandi að hafa ekki haldið þetta út. Við erum mun betra liðið í fyrri hálfleik en Fjölnismenn koma mjög sterkir inn í seinni hálfleik, það er ekki bara við sem að gefum eftir. Við eigum náttúrulega að halda þetta út.

Það kom okkur ágætlega á óvart hvernig þeir komu sér inn í seinni hálfleikinn. Það var góð stemning í hópnum fyrir leikinn og í hléi, vissum hvað við ætluðum að gera og í hverju við myndum lenda þegar við kæmum hérna út. Að við höfum ekki náð að rúlla boltanum jafn vel og í fyrri hálfleik í þeim seinni eru ákveðin vonbrigði.

„Við höldum áfram að vinna. Þó svo að kaupið sé lágt þá verður maður að vinna.“
Athugasemdir
banner