Heimild: Fram
Framherjinn efnilegi Helgi Guðjónsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Fram í Inkasso-deildinni.
Helgi er þegar búinn að gera fimm mörk í sex leikjum á tímabilinu og hefur alls gert 12 mörk í 56 leikjum fyrir félagið.
Helgi er þegar búinn að gera fimm mörk í sex leikjum á tímabilinu og hefur alls gert 12 mörk í 56 leikjum fyrir félagið.
Helgi er fæddur 1999 og gerði 2 mörk í 20 leikjum í Inkasso-deildinni síðasta sumar. Hann er þegar búinn að jafna það með tveimur mörkum í þremur fyrstu leikjunum í ár.
Helgi, sem er frá Borgarfirði, hefur gert sjö mörk í tólf leikjum fyrir yngri landsliðin og var valinn efnilegasti leikmaður Fram í fyrra.
„Helgi hefur alla tíð verið mikill markaskorari og knattspyrnudeild Fram bindur miklar vonir við hann á næstu árum," stendur meðal annars á vefsíðu Fram.
„Það verður ánægjulegt að fylgjast með honum halda áfram að þroskast og þróa sinn leik í Frambúningnum."
Athugasemdir