Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   þri 20. júní 2017 21:36
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir
Orri: Hugarfarið var frábært
Orri var ánægður með frammistöðu síns liðs.
Orri var ánægður með frammistöðu síns liðs.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Orri Þórðarson, þjálfari FH-liðsins var ánægður með baráttuna í liði sínu í dag þrátt fyrir 1-0 tap gegn Þór/KA. Orri lét stelpurnar sínar heyra það eftir eftir 4-0 tap gegn Val í síðustu umferð og var ánægður með hvernig þær svöruðu því.

Lestu um leikinn: FH 0 -  1 Þór/KA

"Þær svöruðu þessu heldur betur með frábærri frammistöðu en því miður fengum við ekkert út úr leiknum. Við áttum svo sannarlega skilið að fá þrjú stig út úr þessum leik."

"Í fyrsta lagi fannst mér hugarfarið frábært og hvernig þær lögðu sig fram. Skipulagið var gott og sérstaklega í seinni hálfleik létum við boltann ganga, áttum möguleika á að klára þennan leik og vorum að skapa sénsa. Ég sá okkur bara að vera að klára þennan leik, við vorum talsvert sterkara liðið í seinni hálfleik og áttum bara að fá 3 stig."

"Stelpurnar voru búnar að gera þetta rosalega vel allan leikinn og þá kemst vængbakvörðurinn þeirra frír upp kantinn og nær sendingu. Þetta er bara hálffæri í rauninni en þetta var frábært skalli hjá henni", sagði Orri aðspurður að því hvað hefði klikkað í aðdraganda marksins.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner