Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. september 2017 16:43
Elvar Geir Magnússon
Everton sektar Rooney eftir ölvunaraksturinn
Rooney fær hér far á æfingu eftir að hafa misst ökuréttindin.
Rooney fær hér far á æfingu eftir að hafa misst ökuréttindin.
Mynd: Daily Mail
Everton hefur sektað Wayne Rooney um tveggja vikna laun eftir að hann játaði á sig ölvunarakstur.

Sóknarmaðurinn missti ökuréttindin í tvö ár og hefur Everton sektað leikmanninn en peningurinn verður settur í gott málefni.

„Eftir réttarhöldin í dag vil ég opinberlega biðjast afsökunar á ófyrirgefanlegu dómgreindarleysi mínu með því að keyra þegar ég var yfir leyfilegum mörkum. Það var algjörlega rangt," sagði Rooney í yfirlýsingu eftir að hann missti bílprófið.

Rooney gekk í raðir Everton í sumar. Hann fór vel af stað á tímabilinu en hefur ekki gengið eins vel í síðustu leikjum.

Everton hefur verið í basli en liðið mætir Sunderland í deildabikarnum í kvöld.
Athugasemdir
banner