Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. september 2017 15:00
Magnús Már Einarsson
Özil að verða klár
Mynd: Getty Images
Mesut Özil er byrjaður að æfa aftur með Arsenal eftir hnémeiðsli sem hafa haldið honum frá keppni að undanförnu.

Özil var ekki með í markalausa jafnteflinu gegn Chelsea á sunnudag né í leiknum gegn Köln í Evrópudeildinni í síðustu viku.

Özil er byrjaður að æfa aftur en hann greindi frá þessu á Instagram.

Þjóðverjinn verður ekki með Arsenal gegn Doncaster í deildabikarnum í kvöld en hann ætti að snúa aftur í liðið fljótlega.

„Líður betur á hverjum degi núna og vonast til að byrja að spila aftur mjög fljótlega," sagði Özil.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner