Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. október 2014 10:32
Magnús Már Einarsson
Myndband: Lést þegar hann fagnaði marki
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Peter Biaksangzuala miðjumaður Betlehem Vengthlang FC lést á sjúkrahúsi í gærmorgun eftir að hafa meiðst við að fagna marki gegn Chanmari West FC í Indlandi í síðustu viku.

Hinn 23 ára gamli Peter jafnaði leikinn 1-1 á 62. mínútu leiksins.

Hann fagnaði með heljarstökki en lenti illa á höfðinu og var fluttur í skyndi á sjúkrahús. Peter varð fyrir mænuskaða og lést á sjúkrahúsi í gær.

,,Hann var að reyna að fagna eins og Þjóðverjinn Klose en það misheppnaðist því miður," sögðu fjölmiðlar á Indlandi.

Hér að neðan má sjá myndband af fagninu en það kemur eftir 2 mínútur og 30 sekúndur.


Athugasemdir
banner
banner