Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 20. október 2016 07:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Kaffid.is 
Karen Nóadóttir tekin við Hömrunum (Staðfest)
Karen í leik með Þór/KA.
Karen í leik með Þór/KA.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Karen Nóadóttir hefur verið ráðin þjálfari Hamranna í 1. deild kvenna en kaffid.is greinir frá þessu.

Karen hefur verið fyrirliði kvennaliðs Þór/KA undanfarin ár en ekki er útilokað að hún muni halda áfram að leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna samhliða þjálfun Hamranna.

Hin 26 ára gamla Karen hefur spilað 173 leiki í deild og bikar með Þór/KA á ferli sínum.

Hamrarnir enduðu í 2.sæti C-riðils 1.deildar kvenna á síðustu leiktíð og féllu úr keppni í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Næsta sumar verður leikið í þremur deildum en Hamrarnir verða í næstefstu deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner