Gareth Bale, Karim Benzema, Luka Modric og Marcelo munu allir missa af stórleik Real Madrid gegn Astletico Madrid á morgun. Um er að ræða seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum en fyrri leikurinn á Vicente Calderon endaði með markalausu jafntefli.
Real Madrid hefur nú mistekist að vinna Atletico í síðustu sjö viðureignum þessara liða!
Real Madrid hefur nú mistekist að vinna Atletico í síðustu sjö viðureignum þessara liða!
Meiðsli herja nú á leikmannahópinn. Bale og Modric fóru meiddir af velli í sigrinum gegn malaga á laugardag og Benzema meiddist á æfingu. Marcelo tekur út leikbann.
Allir þessir leikmenn eru venjulega fastamenn í byrjunarliðinu.
Javier ‘Chicharito’ Hernandez og Fabio Coentrao fá sjaldgæft tækifæri til að sýna sig og sanna og Isco eða Jese og Asier Illaramendi eða Sami Khedira fara í byrjunarliðið.
Atletico vantar bara miðjumanninn Mario Suarez sem tekur út bann.
Athugasemdir