Topp tíu listarnir hjá Football365 eiga það til að hressa en í morgun var opinberaður listi yfir tíu leikmenn í ensku úrvalsdeildinni sem íþróttafréttamaðurinn Daniel Storey telur að eigi meira hrós skilið en þeir hafa fengið.
James Tomkins (West Ham) - Þessi 26 ára miðvörður er ekki fullkominn en hefur skilað flottum frammistöðum fyrir West Ham.
Ashley Williams (Swansea) - Sóknarsinnuðu svanirnir hafa fengið hrósið en Williams er sem klettur og spilar nánast hvern einasta leik.
Mamadou Sakho (Liverpool) - Virkar stundum klaufalegur en orðspor hans er ósanngjarnt. Hann hefur í raun gert fátt rangt síðan hann kom til Liverpool.
Antonio Valencia (Manchester United) - Hefur fest sig í sessi í hægri bakverðinum og staðið sig með sóma.
Cesar Azpilicueta (Chelsea) - Varnarmaðurinn virðist alltaf sigla aðeins undir radarnum þrátt fyrir að standa sig afar vel.
Christian Eriksen (Tottenham) - Það hefur kannski bara hjálpað honum að vera aðeins í skugganum af Harry Kane.
Athugasemdir