Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   lau 21. maí 2016 21:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Van Gaal um Mourinho: Sýni ykkur bikarinn hér
Van Gaal tekur hér við bikarnum ásamt David de Gea
Van Gaal tekur hér við bikarnum ásamt David de Gea
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal, stjóri Manchester United, vildi ekki tjá sig um þá orðróma sem fóru á kreik eftir sigur liðsins í enska bikarnum í dag.

Orðrómarnir sem fóru af stað eftir sigur United fela það í sér að van Gaal verði rekinn á næstu dögum og skipt út fyrir Jose Mourinho.

Bikarsigur United er ekki sagður hafa breytt neinu varðandi stöðu van Gaal, en hann vildi ekki tjá sig mikið um málið eftir leikinn í dag.

„Ég sýni ykkur bikarinn. Ég ræði ekki um þetta við vini mína í fjölmiðlum, sem voru búnir að reka mig fyrir sex mánuðum," sagði van Gaal.

„Ég vil ekki tala um að fara héðan.“
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner