AC Milan hefur blandað sér í baráttuna um Marouane Fellaini, leikmann Manchester United sem verður samningslaus í sumar.
Þrátt fyrir vilja bæði Fellaini og Manchester United hefur þeim ekki enn tekist að skrifa undir samning. Því gæti þessi þrítugi leikmaður farið frítt í sumar.
Talið er að Fellaini standi til boða að skrifa undir samning hjá Man Utd sem gildir til loka næsta tímabils með möguleika á 12 mánaða framlengingu.
Hinsvegar er talið að Fellaini vilji fá tveggja ára samning hjá United. AC Milan hafa bæst í kapphlaupið um leikmannin og er talið að þeir hafi boðið Fellaini þriggja ára samning. Auk þess eru lið frá Tyrklandi og Kína sögð áhugasöm.
Athugasemdir