Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 21. desember 2014 14:18
Arnar Geir Halldórsson
Carrick hefur mikla trú á Falcao
Er Falcao kominn í gang?
Er Falcao kominn í gang?
Mynd: Getty Images
Michael Carrick, miðvallarleikmaður Manchester United, hrósar liðsfélaga sínum Radamel Falcao og trúir því að hann muni reynast liðinu drjúgur í markaskorun.

Ferill Falcao á Old Trafford hefur farið frekar hægt af stað eftir að hann kom á láni frá Monaco síðasta sumar en Kólumbíumaðurinn skoraði eina mark liðsins í jafnteflinu gegn Aston Villa í gær. Carrick hefur trú á að Falcao sé kominn í gang.

,,Hann hefur skorað svo mörg mörk í gegnum árin og þér líður alltaf eins og hann muni skora þegar hann fær færi. Hann skoraði magnað skallamark í gær og ég er ánægður fyrir hans hönd."

,,Hann er að koma til baka eftir að hafa verið frá í smá tíma og vonandi mun hann komast á skrið og hjálpa okkur að komast aftur á sigurbraut."
sagði Carrick.

Manchester United fær Newcastle í heimsókn á öðrum degi jóla.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner