Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 22. janúar 2017 13:23
Kristófer Kristjánsson
Byrjunarlið Arsenal og Burnley: Jóhann Berg enn þá meiddur
Giroud hefur verið heitur undanfarið
Giroud hefur verið heitur undanfarið
Mynd: Getty Images
Tom Heaton verður í eldlínunni í dag
Tom Heaton verður í eldlínunni í dag
Mynd: Getty Images
Arsenal tekur á móti Burnley í ensku úrvalsdeildinni eftir um klukkutíma og eru byrjunarliðin nú klár.

Fyrir leikinn er Arsenal í fjórða sæti deildarinnar en með sigri færist liðið upp í annað sæti.

Burnley hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum og situr í 13 sæti deildarinnar. Sean Dyche verður hinsvegar án Jóhanns Berg sem er áfram meiddur.

Byrjunarlið Arsenal: Cech, Gabriel, Mustafi, Koscielny, Monreal, Ramsey, Xhaka, Iwobi, Özil, Sánchez, Giroud.

Byrjunarlið Burnley:Heaton, Lowton, Keane, Mee, Ward, Boyd, Marney, Hendrick, Defour, Gray, Barnes.






Athugasemdir
banner
banner
banner