Felix Örn Friðriksson, vinstri bakvörður ÍBV, er þessa dagana á reynslu hjá AaB í Danmörku.
Hinn 18 ára gamli Felix fer með Álaborgarliðinu í æfingaferð til Spánar en vetrarfrí er í gangi í dönsku úrvalsdeildinni.
Í ferðinni spilar AaB æfingaleiki á móti Shonan Bellmare frá Japan og Sparta Prag frá Tékklandi.
Felix spilað fyrr í mánuðinum sína fyrstu landsleiki þegar hann kom við sögu gegn Indónesínu.
Felix varð bikarmeistari með ÍBV í fyrra en hann hefur þrátt fyrir ungan aldur fest sig í sessi í meistaraflokki hjá liðinu.
Athugasemdir