Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. apríl 2018 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Loftus-Cheek ekki viss um hvar hann mun spila á næsta tímabili
Mynd: Getty Images
Ruben Loftus-Cheek sem leikur á láni hjá Crystal Palace frá Chelsea er ekki viss um hvar hann mun spila á næsta tímabili.

„Ég hef ekkert hugsað um það sjálfur hvar ég verð á næsta tímabili,“ sagði Loftus-Cheek.

„Ég á enn nokkra leiki eftir á þessu tímabili, ég er algjörlega einbeittur á Palace. Hvað sem er að fara gerast á næsta tímabili þá er ég ekki að hugsa um það núna.“

Crystal Palace mætti Watford í gær þar sem Loftus-Cheek var í byrjunarliði Crystal Palace.

Athugasemdir
banner
banner
banner