Tottenham Hotspur hefur fengið leyfi til að leika alla heimaleiki sína á Wembley þjóðarleikvanginum á næsta tímabili.
Tottenham getur ekki spilað á White Hart Lane, þann leikvang þarf að rífa til að gera pláss fyrir nýjan sem er þegar kominn langt á leið með að verða tilbúinn.
Tottenham getur ekki spilað á White Hart Lane, þann leikvang þarf að rífa til að gera pláss fyrir nýjan sem er þegar kominn langt á leið með að verða tilbúinn.
Spurs þurfa því að færa heimaleiki sína og hafa fengið leyfi til að nota Wembley, þar sem 90 þúsund stuðningsmenn komast fyrir.
Wembley er leikvangurinn þar sem úrslitaleikir bikarkeppna eru spilaðir rétt eins og heimaleikir enska landsliðsins. Leikvangurinn kostaði 798 milljónir punda á sínum tíma, sem er tvöfalt meira en nýi heimavöllur Everton á að kosta.
Athugasemdir