Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 23. mars 2018 13:13
Magnús Már Einarsson
Aguero missir af leikjum Argentínu
Sergio Aguero.
Sergio Aguero.
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero verður væntanlega ekki með Argentínu í vináttuleiknum gegn Ítalíu í kvöld og gegn Spáni í næstu viku.

Argentínumenn eru að undirbúa sig fyrir HM í sumar þar sem þeir eru með Íslandi í riðli.

Aguero hefur verið að glíma við meiðsli á hné en hann var ekki með í síðasta leik Manchester City gegn Stoke.

Argentína mætir Ítalíu á Etihad leikvanginum í Manchester í kvöld áður en liðið fer til Spánar fyrir leikinn þar á þriðjudag.

Allt bendir til þess að Aguero fari ekki með til Spánar heldur verði eftir í Manchester í meðhöndlun hjá Manchester City vegna meiðslanna.

Argentínumenn eru ekki á flæðiskeri staddir með framherja en þeir eru með Lionel Messi og Gonzalo Higuain í hópnum auk þess sem Mauro Icardi og Paulo Dybala voru ekki valdir að þessu sinni.
Athugasemdir
banner