Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 23. maí 2018 16:23
Magnús Már Einarsson
Sarri hættur með Napoli (Staðfest)
Ancelotti að taka við
Maurizio Sarri.
Maurizio Sarri.
Mynd: Getty Images
Maurizio Sarri verður ekki áfram þjálfari Napoli á næsta tímabili en þetta staðfesti Aurelio De Laurentiis forseti félagsins á Twitter í dag.

Sarri hafnaði í vikunni tilboði frá Zenit St. Pétursborg en hann hefur verið sterklega orðaður við Chelsea að undanförnu.

Napoli náði 91 stigi í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili en hafnaði í öðru sæti á eftir Juventus.

Allt bendir til þess að Carlo Ancelotti taki við Napoli af Sarri en hann hefur verið í fríi frá fótbolta síðan hann var rekinn frá Bayern Munchen síðastliðið haust.

Hinn 59 ára gamli Sarri hefur stýrt Napoli frá 2015 en áður hafði hann verið hjá nokkrum öðrum ítölskum félögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner