Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 23. júlí 2016 13:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Sam Allardyce: Get ekki hætt að brosa
Sam Allardyce
Sam Allardyce
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce er himinlifandi eftir að hafa verið ráðinn landsliðsþjálfari Englands og er hann staðráðinn í að gera Englendinga stolta af landsliðinu aftur.

Hann tekur við af Roy Hodgson sem hætti eftir tap gegn Íslandi á EM.

Stóri Sam, eins og hann er kallaður, hefur ekki getað hætt að brosa síðan hann var ráðinn til starfa hjá landsliðinu.

„Ég get ekki hætt að brosa því ég fékk þetta starf. Þetta er starf sem ég hef beðið eftir í mörg, mörg ár og það eru algjör forréttindi að verða orðinn landsliðsþjálfari."

„Það er mjög spennandi að taka þetta lið áfram og vonandi get ég gert fólk stolt af landsliðinu aftur," sagði Allardyce.
Athugasemdir
banner
banner