Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   sun 23. júlí 2017 12:36
Elvar Geir Magnússon
Dagný sýnir áverkana sem hún fékk eftir Dickenmann
Dagný á æfingunni í morgun.
Dagný á æfingunni í morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dómgæslan í leikjum Íslands á Evrópumótinu hefur verið mikið til umræðu.

Eftir rúmlega fimm mínútna leik í tapinu gegn Sviss í gær fékk Lara Dickenmann fyrirliði Sviss að líta gula spjaldið eftir harkalega tæklingu á Dagnýju Brynjarsdóttur. Dagný fékk karate-spark frá Dickenmann í mjöðmina.

Dagný sýndi fréttamönnum afleiðingarnar á æfingu Íslands í morgun eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

„Ef ég hefði verið dómari, þá hefði ég gefið henni rautt," sagði Dagný eftir leikinn í gær og er hún sár og bólgin í dag.

Dagný ræddi við Arnar Daða Arnarsson á æfingu í morgun og má sjá viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan. Þar ræðir hún meðal annars um þá stöðu sem hún hefur verið að spila á Evrópumótinu sem fölsk nía og um leikkerfi landsliðsins.

Ísland á eftir að mæta Austurríki á miðvikudag en ljóst er fyrir leikinn að liðið endar í neðsta sæti riðilsins og kemst ekki í 8-liða úrslitin.

Sjá einnig:
Freysi um rússneska dómarann: Hvernig er hægt að bjóða upp á svona?

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner