Diego Costa, framherji Chelsea, er kominn heim eftir að hafa dvalið á sjúkrahúsi.
Costa var með magaverki eftir að hann kom heim úr verkefni með spænska landsliðinu í síðustu viku.
Costa hefur einnig verið að glíma við nárameiðsli en hann er mjög tæpur fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudag.

Hinn 26 ára gamli Costa hefur byrjað af krafti í Englandi en hann er kominn með níu mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir