Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 23. október 2017 12:30
Elvar Geir Magnússon
Liverpool sagt tilbúið að láta Coutinho af hendi í janúar
Fer hann til Barcelona í janúar?
Fer hann til Barcelona í janúar?
Mynd: Getty Images
Liverpool er tilbúið að láta Philippe Coutinho fara í janúar samkvæmt fréttum frá Spáni. Barcelona lagði mikið í að reyna að fá Brasilíumanninn í sumar en Liverpool hafnaði öllum tilboðum.

Mundo Deportivo segir að njósnarar Barcelona hafi verið á Wembley í gær þegar Coutinho og félagar töpuðu illa 4-1 gegn Tottenham.

Þá segir blaðið að Jurgen Klopp vilji ekki útiloka það að Coutinho verði seldur.

Coutinho var nálægt því að yfirgefa Liverpool fyrir Barcelona eftir að hann fór fram á sölu í sumar.

Þessi 25 ára leikmaður hefur verið einn ljósasti punkturinn í liði Liverpool á þessu tímabili, skorað fjögur mörk í átta leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner