Guðjón Baldvinsson fer vel af stað undir stjórn Ólafs Kristjánssonar hjá FC Nordsjælland en hann skoraði í æfingaleik gegn IFK Gautaborg í dag.
Guðjón gekk til liðs við Nordsjælland um áramótin en danska deildin fer aftur af stað eftir vetrafrí þann 20.febrúar.
Leikurinn í dag fór fram í Svíþjóð en Guðmundur Þórarinsson spilaði síðasta hálftímann í leiknum fyrir sitt nýja félag en Guðmundur skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning fyrr í dag.
Guðjón kom Nordsjælland í 1-0 en Gautaborg jafnaði og endaði leikurinn með 1-1 jafntefli.
Athugasemdir