Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. mars 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
Caroline Van Slambrouck í ÍBV (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV hefur fengið Caroline Van Slambrouck í sínar raðir fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna í sumar.

Caroline er 24 ára gömul en hún er varnarmaður.

Caroline er frá Bandaríkjunum en hún hefur spilað í háskólaboltanum þar í landi.

ÍBV hefur í vetur einnig krækt í bandaríska markvörðinn Adelaide Gay, varnarmanninn Adrienne Jordan og kantmanninn Katie Kraeutner.

Kristín Erna Sigurlásdóttir er einnig komin aftur til ÍBV frá Fylki auk þess sem Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir og Rut Kristjánsdóttir hafa komið til félagsins.
Athugasemdir
banner