Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. maí 2015 15:33
Arnar Geir Halldórsson
Danmörk: Kjartan Henry skoraði tvö
Markaskorari
Markaskorari
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum í dönsku B-deildinni í dag.

Kjartan var í byrjunarliði Horsens sem fékk botnlið Bronshoj í heimsókn,

Eftir 15 mínútna leik fengu heimamenn vítaspyrnu. Á vítapunktinn steig Kjartan Henry og skoraði af öryggi.

Gestirnir jöfnuðu metin eftir rúmlega klukkutíma leik en tíu mínútum síðar kom Kjartan heimamönnum aftur í forystu. Það reyndist þó skammgóður vermir því Bronshoj jafnaði á lokamínútunum og endaði leikurinn 2-2.

Kjartan Henry hefur skorað níu mörk á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner