Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. maí 2015 16:16
Arnar Geir Halldórsson
Einkunnir úr Hull-Man Utd: Fellaini fær núll
Fellaini í ruglinu
Fellaini í ruglinu
Mynd: Getty Images
Það var enginn glæsibragur yfir leik Hull og Man Utd í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Hull þurfti á sigri að halda til að halda sæti sínu í deildinni og sóttu mun meira en leikmenn Man Utd virtust vera komnir með hugann við sumarfríið sem er handan við hornið því þeir höfðu lítinn áhuga á leiknum.

Leiknum lauk með markalausu jafntefli sem þýðir að lærisveinar Steve Bruce leika í Championship deildinni á næsta tímabili.

Marouane Fellaini kom inná sem varamaður eftir klukkutíma leik en var farinn af velli korteri síðar með beint rautt spjald eftir glórulausa tæklingu á Paul McShane.

Hull
Harper 5
Dawson 6
McShane 6
Chester 5
Quinn 6
Elmohamady 8
Huddlestone 6
Meyler 5
N´Doye 5
Brady 7
Jelavic 5
Varamenn: Robertson 5, Aluko 6, Hernandez 5.

Man Utd
Valdes 7
Jones 6
Smalling 7
Rojo 5
Valencia 5
Mata 5
Di Maria 3
Young 2
Blind 6
Herrera 6
Rooney 4
Varamenn: Januzaj 3, Fellaini 0, Wilson 5
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner