Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   lau 24. júní 2017 17:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hann myndi ekki vita hvað fótbolti er þó hann fengi hann í hausinn"
Lárus var svekktur með úrslitin.
Lárus var svekktur með úrslitin.
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari Þórs, var ekkert sérstaklega kátur, þegar rætt var við hann eftir 1-0 tap gegn Keflavík í dag.

Þór hefur aðeins níu stig eftir níu umferðir í Inkasso-deildinni.

„Það var stutt á milli liðanna. Það sem skildi liðin að var tækling og boltinn upp í loftið og hann datt niður fyrir Keflvíkinginn. Það var það sem skildi að í þessu," sagði Lárus.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  0 Þór

Lárus segir að planið hafi verið að liggja til baka og "breika" á þá.

„Ekkert að halda stiginu, við ætluðum að liggja til baka og "breika" á þá og það gekk vel. Þeir voru ekki að skapa sér mikið."

Hann talaði svo dómara leiksins.

„Þessi úrslit eru alls ekki dómaranum að kenna, alls ekki. En það er alveg skelfilegt að horfa upp á dómarann eins og dómarinn er í dag, hann virðist hafa enga tilfinningu fyrir fótboltanum, leikstjórnunin hjá honum er skelfileg. Hann myndi ekki vita hvað fótbolti er þó hann fengi hann í hausinn."

Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner