Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 24. júní 2017 19:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Inter: Sevilla þarf að borga meira fyrir Banega
Banega lék áður með Sevilla.
Banega lék áður með Sevilla.
Mynd: Getty Images
Walter Sabatini, stjóri íþróttamála hjá Inter, segir að Sevilla þurfi að borga meira en 9 milljónir evra fyrir Argentínumanninn Ever Banega.

Banega fór frá Sevilla til Inter á frjálsri sölu á síðasta ári og hann spilaði 28 leiki fyrir Mílanó-liðið á tímabilinu.

Hann gæti núna verið á leið aftur til Sevilla, en Sabatini hefur staðfest að viðræður á milli félaga séu í gangi.

„Það er satt að við séum að ræða við Sevilla," sagði Sabatini við ABC de Sevilla. „Það hafa átt sér stað formleg samskipti á milli Inter og Sevilla," sagði hann enn fremur.

„Við erum að vinna í því að ná samkomulagi, en þetta snýst um þolinmæði. Við getum ekki tryggt neitt núna," sagði Sabatini sem var síðan spurður út í verðmiðann. „9 milljónir evra? Í hreinskilni sagt þá finnst mér það of lítið."
Athugasemdir
banner
banner