AZ 0 - 2 Excelsior
0-1 Luigi Bruins ('2, víti)
0-2 Luigi Bruins ('8, víti)
0-1 Luigi Bruins ('2, víti)
0-2 Luigi Bruins ('8, víti)
Landsliðsmarkvörðurinn Ögmundur Kristinsson er kominn til Excelsior í Hollandi. Hann stóð vaktina í rammanum í dag þegar Excelsior mætti AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni.
Þetta var fjórði leikur Ögmundar í marki Excelsior, en hann hefur verið að standa sig vel hingað til.
Í dag hélt hann þó í fyrsta sinn hreinu. Luigi Bruins skoraði tvö fyrir Excelsior af vítapunktinum og niðurstaðan var 2-0 sigur.
Ögmundur og félagar hans eru í 12. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir sex leiki.
Athugasemdir