Danski kantmaðurinn Simon Kollerup Smidt er á förum frá ÍBV en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Simon gerði eins árs samning við ÍBV fyrr á árinu með möguleika á árs framlengingu.
„Ég átti frábært ár hjá ÍBV og ég er hissa á því að þeir hafi ekki nýtt sér ákvæði til að semja til eins árs í viðbót," sagði Simon við Fótbolta.net.

Hinn 25 ára gamli Simon skoraði sex mörk í 24 leikjum í Pepsi-deildinni og Borgunarbikarnum í sumar en hann vill spila áfram á Íslandi.
„Ég vil fara aftur til Íslands. Það var frábær reynsla að spila þar," sagði Simon.
Athugasemdir