Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. nóvember 2017 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Stórleikur á Anfield
Titilvörnin fór heldur rólega af stað en nú virðist vélin vera komin í gang.
Titilvörnin fór heldur rólega af stað en nú virðist vélin vera komin í gang.
Mynd: Getty Images
Helgin í enska boltanum hefst í kvöld þegar David Moyes stýrir West Ham í fyrsta sinn á heimavelli, gegn Leicester City.

Hamrarnir töpuðu fyrsta leiknum með Moyes við stjórnvölinn á útivelli gegn Watford og þurfa sigur í kvöld til að koma sér úr fallsæti.

Manchester United tekur á móti Brighton á morgun. Nýliðarnir eru í efri hluta deildarinnar, með 16 stig eftir 12 umferðir. Rauðu djöflarnir eru í öðru sæti, átta stigum eftir Manchester City.

Tottenham tekur á móti West Brom sem er búið að tapa fjórum í röð og botnlið Crystal Palace fær Stoke í heimsókn.

Stórleikur helgarinnar er á morgun þegar Liverpool tekur á móti Chelsea. Heimamenn eru komnir með þrjá deildarsigra í röð og gestirnir fjóra.

Gylfi Þór Sigurðsson verður líklega í byrjunarliði Everton gegn Southampton á sunnudaginn. Gylfi var hvíldur í niðurlægjandi 5-1 tapi gegn Atalanta á Goodison Park í gær.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley taka á móti Arsenal og að lokum á Huddersfield, sem lagði Man Utd að velli fyrir rúmum mánuði, heimaleik við topplið Man City.

Föstudagur:
20:00 West Ham - Leicester (Stöð 2 Sport)

Laugardagur:
15:00 Crystal Palace - Stoke
15:00 Man Utd - Brighton (Stöð 2 Sport)
15:00 Newcastle - Watford
15:00 Swansea - Bournemouth
15:00 Tottenham - West Brom
17:30 Liverpool - Chelsea (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
13:30 Southampton - Everton (Stöð 2 Sport)
14:00 Burnley - Arsenal
16:00 Huddersfield - Man City (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner