Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. desember 2014 09:00
Alexander Freyr Tamimi
Van Gaal: Falcao er háður liðsfélögum sínum
Louis Van Gaal vill að Falcao fái aðstoð.
Louis Van Gaal vill að Falcao fái aðstoð.
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal, stjóri Manchester United, segir að til að Falcao blómstri þurfi liðsfélagar hans að spila vel.

Kólumbíumaðurinn hefur skorað í síðustu tveimur byrjunarliðsleikjum í ensku úrvalsdeildinni, gegn Everton í október og Aston Villa um helgina, en hann hefur átt erfitt með að komast í sitt besta form.

Falcao raðaði inn mörkum hjá Porto og Atletico Madrid áður en hann fór til Monaco, þar sem hann sleit krossbönd, en Van Gaal telur að framherjinn geti fundið fjölina sína á ný á Old Trafford.

,,Falcao er háður liðsfélögum sínum. Hann getur verið í frábæru standi, en liðið þarf að vera í frábæru standi. Þannig getur Falcao sýnt gæði sín," sagði Van Gaal við blaðamenn.

,,Ef það kemur ekki fyrirgjöf frá Ashley Young, þá getur hann ekki gert það sem hann gerði í síðasta leik gegn Aston Villa."
Athugasemdir
banner
banner