Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   lau 25. apríl 2015 10:49
Arnar Geir Halldórsson
Byrjunarlið Southampton og Tottenham: Lloris byrjar
Lloris er mættur aftur
Lloris er mættur aftur
Mynd: Getty Images
Tottenham heimsækir St.Mary´s í fyrsta leik helgarinnar í enska boltanum og hefst leikurinn klukkan 11:45.

Mauricio Pochettino snýr aftur á St.Mary´s og mætir sínum fyrrum vinnuveitendum.

Eitt stig skilur liðin að í sjötta og sjöunda sætti og gæti þessi leikur haft mikið að segja í baráttunni um sæti í Evrópudeildinni að ári.

Hugo Lloris snýr aftur í markið hjá Tottenham en hann hefur verið fjarverandi í síðustu leikjum vegna meiðsla. Óvíst var með þátttöku Toby Alderweireld en hann er í byrjunarliði Dýrlinganna.

Byrjunarlið Southampton:Davis, Clyne, Yoshida, Fonte, Bertrand, Alderweireld, Schneiderlin, Davis, Mane, Ward-Prowse, Pelle.

Byrjunarlið Tottenham:Lloris (c), Dier, Fazio, Vertonghen, Davies; Bentaleb, Mason; Chadli, Eriksen, Lamela; Kane
Athugasemdir
banner