Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   lau 25. apríl 2015 18:43
Arnar Geir Halldórsson
Þýskaland: Bayern með níu fingur á titlinum
Mynd: Getty Images
Bayern 1 - 0 Hertha Berlin
1-0 Bastian Schweinsteiger ('80 )


Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen tóku stórt skref í átt að titilvörninni þegar liðið fékk Hertha Berlin í heimsókn á Allianz Arena í dag.

Bayern marði sigur en Bastian Schweinsteiger gerði eina mark leiksins tíu mínútum fyrir leikslok.

Bayern er því komið með 15 stiga forskot á toppi deildarinnar og er komið með níu fingur á titilinn en ef Wolfsburg ætlar að ná Bayern þarf liðið að vinna alla sína leiki og treysta á að Bayern tapi öllum sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner