„Við nýtum ekki færin okkar og svo gefum við ódýr mörk sem kosta okkur leikinn," sagði Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, eftir óvænt 2-1 tap gegn Selfossi í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Selfyssingar leika í 1. deild en Bjarni telur að KR-ingar hafi ekki vanmetið þá.
„Ég held að við höfum ekki gert það. Við sköpum okkur fullt af færum, erum ákafir og vinnum annan boltann. Við sköllum í stöngina tvisvar í leiknum og eigum fullt af skotum inn í teig sem við nýtum ekki."
Arnar Logi Sveinsson skoraði sigurmark Selfyssinga þegar lítið var eftir af framleningunni.
„Við erum með marga frammi að ná í mark. Síðan kom löng sending út og við förum ekki í fyrsta boltann. Við vorum seinir að koma til baka í vörnina. Við vorum miklir klaufar í varnarleiknum. Við fáum tækifæri eftir tækifæri til að klára þetta og hreinsa boltann en tökum ekki þau tækifæri."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir