Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 25. maí 2016 18:00
Magnús Már Einarsson
Messi er mikill aðdáandi Stephen Curry
Mynd: Getty Images
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, vonast til að fá tækifæri til að hitta körfuboltamanninn Stephen Curry í Bandaríkjunum þegar Copa America fer þar fram í næsta mánuði. Curry er í miklu uppáhaldi hjá Messi.

„Fótboltinn verður í aðalhutverki hjá mér en ég vonast líka til að hitta Stephen Curry hjá Golden State Warriors. Það er töfrum líkast að sjá hann spila," sagði Messi.

„Allir elska það sem hann gerir: körfuboltaáhugamenn, liðsfélagar og andstæðingar. Við erum smávaxnir og leikstíll okkar er svipaður."

„Í desember sendi hann mér áritaða Warrios treyju og í apríl sendi ég honum til baka áritaða treyju frá mér."

„Ef þú horfir á Curry spila, eða bara hita upp, þá tekur þú eftir sambandi hans við boltann. Það er eins og líkami hans og hugur séu alltaf á sömu bylgjulengd og boltinn. Ég reyni að hafa þá tengingu í minni íþrótt líka."

Athugasemdir
banner
banner