Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   fim 25. maí 2017 17:02
Ingvar Björn Guðlaugsson
Ian Jeffs: Verðum alltaf miðlungslið ef við höldum þessu einbeitingarleysi
Ian Jeffs var ósáttur með að fá ekkert úr leik dagsins
Ian Jeffs var ósáttur með að fá ekkert úr leik dagsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV tapaði stigum þegar þær heimsóttu Þór/KA konur á Akureyri fyrr í dag. 3-1 tap staðreynd og Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, var ekki ánægður með hvernig fór eftir að leikurinn hafði verið jafn og staðan 1-1 þegar 80.mínútur voru búnar.

Lestu um leikinn: Þór/KA 3 -  1 ÍBV

„Það er alltaf svekkjandi að tapa leik og mér fannst eins og leikurinn spilaðist að það væri jafnteflislykt af þessu. Þær áttu mikið af skotum fyrir utan teig og við fengum tækifæri til að gera eitthvað þannig þetta leit út fyrir að fjara út í 1-1 jafntefli. En ef þú verst ekki föstum leikatriðum þá bara færðu á þig mark,“ voru fyrstu viðbrögð Ian Jeffs við tapinu.

„Ég er óánægður og ósáttur með það. Við fórum vel yfir þetta á æfingasvæðinu og að fá á sig mark svona eftir að hafa farið svona vel yfir þetta, ég er bara “pissed” að þetta hafi gerst í dag,”

„Ég vil vera ofar og ég vil berjast við toppliðin. Við sýndum í dag og á móti Stjörnunni og í 70 mínútur á móti Val að við getum gefið bestu liðunum góðan leik“ hafði Jeffsý meðal annars að segja um hvernig deildin hefði æxlast hingað til.

„Ef ég á að taka eitthvað jákvætt úr leiknum þá var frammistaðan mjög fín í 80 mínútur en við verðum að gera betur í svona leikjum,” voru lokaorð Ian Jeffs eftir leikinn í dag.

Allt viðtalið má sjá hér að ofanverðu.
Athugasemdir
banner
banner