Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   fim 25. maí 2017 21:34
Arnar Daði Arnarsson
Katrín um fögnin sín: Þetta er alveg skelfilegt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum alltaf ánægðar með þrjú stig. Við hefðum getað spilað betur. Seinni hálfleikurinn var ekki upp á marga fiska hjá okkur. Við erum sáttar með þrjú stig," sagði fyrirliði Stjörnunnar, Katrín Ásbjörnsdóttir eftir 3-1 sigur liðsins gegn FH í 6. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 1 -  3 Stjarnan

„Þær áttu ekki nein dauðafæri en þær gáfu okkur hörkuleik og við förum ánægðar heim með þrjú stig."

Ein af betri leikmönnum Stjörnunnar, Ana Victoria Cate fékk beint rautt spjald tíu mínútum fyrir leikslok fyrir að óíþróttamannslega hegðun fjarri boltanum. Hún verður því í banni í næsta leik þegar Stjarnan tekur á móti Þór/KA í toppslag.

„Þetta er mjög svekkjandi upp á næsta leik að gera. Þetta er svolítið klaufalegt en svona er þetta. Þær voru búnar að vera kítast á undan. Ég sá ekki nákvæmlega hvað átti sér stað."

Katrín skoraði tvívegis í leiknum og er því komin með átta mörk í deildinni í sumar. Með fullri virðingu, þá verður hún samt sem áður að fara vinna í betri fögnum með þessu áframhaldi.

„Ég held áfram að skora og það er flott. Ég er alveg sammála þér, þetta er alveg skelfilegt. Ég er ekki með neinar hugmyndir eins og er, en ég fer að vinna í því og kem með eitthvað betra næst."

„Það er sex stiga leikur á okkar heimavelli. Við ætlum okkur að taka þrjú stig þar," sagði markaskorarinn mikli og fyrirliði Stjörnunnar að lokum aðspurð út í toppslaginn gegn Þór/KA í næstu umferð.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner